Monday, February 19, 2007

Ad koma til Quito

Adkoman til Quito var nett sódaleg.. Ég steig út úr rútunni eftir myrkur og labbadi lengst inn í midborgina. Vard fyrir einni illgjarnri froduárás. Einhverjum unglingnum fannst fyndid ad spreyja nidur ljoshaerda útlendinginn med stóra ferdabakpokann eftir myrkur. Ég brást ad sjáfsogdu vid thessarri áras med stórefldu vígaoskri hins veraldarvana manns, og faeldi varginn á brott. Eftir ad í midju borgarinnar var komid fór ég ad leita ad ódýru hosteli, en einhverra hluta vegna virtist ekkert vera tharna nalaegt. Ég fann tho ad lokum eitthvad sem hóteli líktist og steig thar inn. Thar blasti vid mér risarými í svakalegri nidurníslu og fólk sem sat í molétnum raudum "ledursófa" í midju rýminu. Ég tók til mála minna, hafandi stúderad spaensku í thaula alla mina menntaskolagongu, og maelti: "Uhm, Hotel?" Einn madurinn stod samstundis upp, adeins of spenntur, og sagdi: "Já, drottningin mín, já!"
"Gaeti ég nokkud fengid ad sjá herbergin?" sagdi ég (allur er varinn gódur)
"Já, drottningin mín.. thad mátt thu"
Hann bladradi alla leidina upp vart standandi stigann, en thvoglumaelid kom i veg fyrir ad ég skildi thad sem hann vildi segja mér.´
Thegar ég spurdi hvort sturtan virkadi lifnadi yfir honum: "Já, hvort hún gerir" Svo steig madurinn, alklaeddur í ledurjakka og rúskinnsskóm, inn í sturtuklefann og skrúfadi frá vatninu. Thad tok hann dágóda stund ad gera sér grein fyrir thvi ad hann vaeri ordinn rennblautur fra toppi til táar, og horfdi vonsvikinn á vota sígarettuna sína. Tha skrufadi hann fyrir og lalladi fram a gang aftur, sneri sér vid og sagdi: "Tíu dollarar, drottningin mín. Bara fyrir thig"

Ég laug thvi ad honum ad ég kaemi rétt strax aftur.

Thursday, January 4, 2007

krakk og hórur

ójá.. ef ferðin verður skemmtileg, verður eitthvað skrifað hér, annars ekki.

39 dagar!